Múlaborgarmál, verndartollar ESB, mál ríkisendurskoðanda og unglingadrykkja
Sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar telur aldrei hægt að koma algjörlega í veg fyrir kynferðisbrot á leikskólum, þótt reynt sé að fyrirbyggja slíkt. Foreldrar á leikskólanum Múlaborg hafa verið gagnrýnir á ýmsa hlekki í kerfinu í tengslum við málið sem þar kom upp.
Gera á breytingar á húsnæði allra leikskóla í Reykjavík og breyta vinnulagi til að koma í veg fyrir að starfsfólk sé eitt með börnum þar sem ekki sést til þess.
Utanríkisráðerra segir það hafa verið fullkomlega þess virði að stunda harða hagsmunabaráttu vegna tolla Evrópusambandsins á íslenskt málmblendi
.
Mál ríkisendurskoðanda er komið á borð forsætisnefndar Alþingis. Starfsmenn Ríkisendurskoðunar hafa sakað hann um einelti og áreitni á vinnustaðnum.
Heimir Hallgrímsson ætlar að rifja upp gamla takta sem tannlæknir í Vestmannaeyjum í desember áður en undirbúningur fyrir umspil írska knattspyrnulandsliðsins fyrir HM hefst.
Umsjón: Erla María Markúsdóttir og Ævar Örn Jósepsson