Fjármál Landspítala, réttarhöld í Dettifossmálinu og gervigreind búin neyðarrofa
Landspítalinn þarf að hagræða fyrir allt að tvo milljarða á næsta ári, samkvæmt fjárlagafrumvarpinu. Forstjóri spítalans segir Ísland eftirbát meðal Norðurlandaþjóða.
Persónuvernd telur eðlilegt að forsætisráðuneytið hafi þurft að upplýsa Ásthildi Lóu Þórsdóttur um kvörtun í hennar garð. Í því felist ekki brot á persónuverndarlögum.
Ríkissaksóknari hefur vísað frá kæru eiganda njósnafyrirtækisins PPP sem hafði kært héraðssaksóknara fyrir rangar sakargiftir.
Ekki hefur verið skipuð stjórn Samkeppniseftirlitsins þrátt fyrir að skipan þeirrar síðustu hafi runnið út fyrir rúmum fimm vikum síðan.
Forsetar Bandaríkjanna og Úkraínu funda í Hvíta húsinu. Úkraínuforseti vill fá langdrægar eldflaugar frá Bandaríkjunum.
Formaður Bændasamtakanna fagnar áformum um að sauðfjárbændum verði skylt að rækta gegn riðuveiki.

Fréttir