Drónaárás á Danmörku og Trump fór hörðum orðum um Evrópu
Drónaflug á Kastrup-flugvelli í gærkvöld er alvarlegt atvik að sögn utanríkisráðherra. Ráðamenn í Danmörku tala um drónaárás.
Of oft hegða ríki heims sér eins og reglur alþjóðasamfélagsins eigi ekki við um þau, segir framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Forseti Bandaríkjanna fór hörðum orðum um Evrópuríki og Sameinuðu þjóðirnar í langri ræðu á allsherjarþinginu í dag.
Innviðaráðherra segir ljóst að sveitarfélög með færri en 250 íbúa geti ekki staðið undir lögbundinni þjónustu. Nýtt frumvarp myndi heimila honum að knýja fram sameiningu.
Aukin vernd vatnalífríkis og svokallaðra vatnshlota getur í sumum tilfellum aukið kostnað við vegagerð. Erfiðara er að fá samþykki fyrir malarnámi í áreyrum, færri malarnámur koma til greina og oftar þarf að keyra efni langt að.
Aðeins þrír af fjörutíu og sex nýjum söngleikjum sem hafa verið settir á svið á Broadway frá heimsfaraldri hafa skilað hagnaði. Góðir dómar og jafnvel Tony-verðlaun hafa ekki dugað til.