Morgunvaktin

Löggæsla, fjarskipti og friðarverðlaunahafi Nóbels

Löggæsla í landinu og skipulag hennar var á dagskránni. Það stendur til að sameina lögregluembætti; fækka þeim úr níu í þrjú; með því á að efla löggæslu í landinu. Þessi áform hafa farið öfugt ofan í fólk víða um land og meðal annars yfirlögregluþjóna. En hvað segir formaður Landssambands lögreglumanna - Fjölnir Sæmundsson kom til okkar.

Björn Davíðsson, framkvæmdastjóri Snerpu á Ísafirði, var svo á línunni. Þegar við notum tölvurnar okkar og símana, og horfum á sjónvarpið hugsum við líklega fæst um hvernig myndin og hljóðið og gögnin berast milli tækja, milli landa og heimsálfa. En þar gegnir ljósleiðari hlutverki. Nú á að selja ljósleiðara Orkuveitunnar og við notuðum tilefnið og spjöllum um þessi net kerfa sem tengja okkur saman.

Suðurafríski mannréttindalögfræðingurinn Navi Pillay er handhafi friðarverðlauna Nóbels í ár, fyrir störf sín í þágu friðar og alþjóðaréttar. Pillay starfaði um árabil sem verjandi baráttufólks gegn aðskilnaðarstefnunni í Suður-Afríku, og síðar sem dómari í stríðsglæpamálum við alþjóðlega dómstóla. Vera Illugadóttir sagði frá.

Orleans - Lady Liberty.

Orleans - Dance with me.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,