Morgunvaktin

Óánægja með framgöngu ríkisstjórnarinnar gagnvart íbúum landsbyggðarinnar

Í upphafi þáttar var rabbað stuttlega um Hallgrímskirkju en 40 ár eru í dag síðan kirkjan var vígð.

Borið hefur á óánægju á landsbyggðunum með ýmsar ákvarðanir ríkisstjórnarinnar. Er jafnvel talað um aðför í því sambandi. Nefndar eru breytingar á Loftbrú, hækkun kílómetragjalds, sameining lögregluembætta og fleira. Alþingismennirnir Eiríkur Björn Björgvinsson Viðreisn og Ólafur Adolfsson Sjálfstæðisflokki ræddu málið.

Í spjalli um stjórnmál í Evrópu fór Björn Malmquist m.a. yfir kosningaúrslitin í Serbíu. Þá ræddi hann við Eirík Bergmann stjórnmálafræðiprófessor um pólitískan og samfélagslegan óróa víða í álfunni.

Í haust tók Sverrir Bollason við formennsku í Skógræktarfélagi Íslands. Rætt var við Sverri um tré og skóga og skógrækt.

Tónlist:

Adagio í g-moll - Kammersveit Reykjavíkur og Björn Steinar Sólbergsson,

Vackert när du vaknar - Magnus Bengtsson o.fl.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunvaktin

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Þættir

,