
Morgunvaktin
Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Síðustu dagar hafa verið slæmir fyrir Úkraínu. Það hafa verið harðari árásir, bæði eiginlegar frá Rússum, og pólitískar frá Bandaríkjunum. Veturinn framundan gæti orðið sá þyngsti í þessu langa stríði fyrir Úkraínumenn. Við ræddum um Úkraínu, Rússland og Bandaríkin við Erling Erlingsson hernaðarsagnfræðing.
Við slógum á þráðinn til Gerðar Bjarkar Sveinsdóttur bæjarstjóra í Vesturbyggð og heyrðum hvort haustið fari mildum höndum um íbúa sunnanverðra Vestfjarða. Við forvitnuðumst líka um helstu verkefnin fram undan í sveitarfélaginu.
Svo var fjallað um samísku, tilefnið auðvitað að handhafi bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár - Sigbjörn Skaden – skrifar á samísku. Helga Hilmisdóttir málvísindakona hjá Árnastofnun kom til okkar og sagði okkur undan og ofan af tungumálinu.
Tónlist:
Simon and Garfunkel - The boxer.
Simon and Garfunkel - Song for the asking.
Ágústa Eva Erlendsdóttir, Senuþjófarnir, Megas - Lengi skal manninn reyna.
Sálgæslan, Andrea Gylfadóttir - Nema hvað?.
Mari Boine - Sterna Paradisea = Cuovgga áirras.
Mari Boine - Mu váibmu vádjol doppe = Mitt hjerte alltid vanker.

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.