Svona er þetta

Hildur Björnsdóttir

?Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, er gestur þáttarins. Hildur tilkynnti nýlega hún biði sig fram til forystu í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík en hún hefur verið borgarfulltrúi flokksins síðan 2018. Rætt er við Hildi um nokkur málefni sem snerta borgina, umhverfismál, loftlagsmál og hvernig þau tengjast stefnu borgarinnar um þéttingu byggðar, borgarlínu og einkabílinn. Hildur er einnig spurð um kynslóðaskipti í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins, hvernig fortíðin blasi við henni og framtíðin. Og við ræðum líka hvernig pólitíkin blasir við ungu fólki en Hildur hóf störf sem borgarfulltrúi rétt ríflega þrítug.

Frumflutt

16. jan. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svona er þetta

Svona er þetta

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf.

Þættir

,