Svona er þetta

Guðni Elísson

Gestur þáttarins er Guðni Elísson, prófessor í bókmenntafræði við Háskóla Íslands og rithöfundur. Guðni sendi nýlega frá sér sína fyrstu skáldsögu, Ljósgildruna, sem vakið hefur talsverða athygli. Bókin er samtímasaga, varpar upp mynd af íslensku bókmenntalífi, menningarlífi og stjórnmálalífi þar sem við sögu koma ýmsar þekktar stærðir á borð við forseta Íslands, formann Sjálfstæðisflokksins og, sumum finnst, þekktar persónur úr röðum menningarforkólfa þessa lands. Bókinni hefur verið lýst sem lykilsögu og skálkasögu. Hún er 800 blaðsíður lengd og höfundur hefur bent á byggingu hennar megi meðal annars miða út frá prósentutölum sem finna á blaðsíðum bókarinnar. Rætt er við Guðna um þetta forvitnilega verk.

Frumflutt

19. des. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svona er þetta

Svona er þetta

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf.

Þættir

,