Svona er þetta

Gunnar Helgi Kristinsson

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf. Gestur þáttarins er er Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Gunnar Helgi hefur sent frá sér rit um Elítur og valdakerfi á Íslandi. Í ritinu heldur Gunnar Helgi því fram þróun hafi orðið á Íslandi frá valdakerfi þar sem embættismenn og önnur elíta með sterk ættartengsl réði á nítjándu öld til flokksræðis á þeirri tuttugustu, þar sem stjórnmálaelítan fór með völdin, en á síðustu áratugum hafi orðið til eins konar margræði þar sem ólíkir elítuhópar í samfélaginu fari með völdin. Rætt er við Gunnar Helga um þessa þróun, kosti og galla ólíkra valdakerfa, áhrif og styrk ólíkra hópa og hlutverk lýðræðisins í valdakerfi samtímans.

Frumflutt

10. okt. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svona er þetta

Svona er þetta

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf.

Þættir

,