Svona er þetta

Dagur B. Eggertsson

Gestur þáttarins er Dagur B Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur. Dagur sendi nýlega frá sér ritið Nýja Reykjavík. Umbreytingar í ungri borg, en bókin er í senn pólitísk saga hans sjálfs og saga Reykjavíkur á síðustu tveimur áratugum. Rætt er við Dag um þá borgarþróun sem bókin lýsir, hugmyndina um þéttingu byggðar, átökin um hana og verkefni sem henni tengjast eins og flugvallarmálið og Borgarlínuna. Bókin er ýmsu leyti óvenjuleg í íslensku samhengi, hún lýsir hugmyndafræðilegri sýn og baráttu við koma henni í framkvæmd, en hún er jafnframt persónulegt uppgjör og opinská þroskasaga stjórnmálamanns sem stundum hefur þótt óljós og hafa tilhneigingu til drepa málum á dreif með orðalengingum. Pólitískt bit þessarar bókar kemur því sumu leyti á óvart á sama tíma og hún vekur spurningar um það hvert Dagur stefnir á sínum pólitíska ferli.

Frumflutt

12. des. 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Svona er þetta

Svona er þetta

Þröstur Helgason ræðir við forvitnilegt fólk um reynslu þess og viðhorf.

Þættir

,