Bara bækur

Prumphænsnin eru víða: The Catcher in the Rye 75 ára

Við týnumst í New York með Holden Caulfield í þætti dagsins. The Catcher in the Rye eftir J.D. Salinger er 75 ára í ár. Skáldsögunni fylgir ákveðinn sögulegur baggi, ára og sögusagnir, allt því samsæriskenningar. Í heimalandinu Bandaríkjunum hefur bókin sums staðar verið blátt áfram bönnuð. Þetta uppsafnaða umtal hefur gert það verkum viðtökusaga bókarinnar er einn þyngsti hluti hennar sem litar afstöðu allra lesenda og verðandi lesenda. Og það er eins og það ekki hægt ræða hana of mikið.

Hún fyrst út í hlutum á árunum 1945-1946 en heildarútgáfan kom út hjá Little, Brown and Company sumarið 1951. Hún hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál og selst ár hvert í um það bil milljón eintökum, sem líklega skýrist af því hún er víða kennsluefni í ensku, þar á meðal hér á Íslandi. Flosi Ólafsson þýddi verkið árið 1975 og heitir Bjargvætturinn í grasinu.

Viðmælendur: Hjálmar Sveinsson, Pétur Már Sigurjónsson og nafnlaus ritlistarnemi.

Leikin er tónlist með Thelonious Monk, Eyþóri Gunnarssyni og brot úr útvarpsþættinum Segið aldrei neinum frá neinu (2009) og upplestri Elíasar Mar á Vögguvísu frá 1974.

Birt

5. sept. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,