Bara bækur

Síðustu dagar skeljaskrímslisins og hrakfarir Hemingways

Í þættinum í dag verðum við bæði í festum og á flakki.

Við byrjum á suðurnesjunum í bát við bryggjuna og leitum skeljaskrímslum með Steinunni G. Helgadóttur rithöfundi og myndlistarmanni. Steinunn var gefa út sína fjórðu skáldsögu, Síðustu dagar skeljaskrímslisins.

Svo höldum við suður á bóginn til Parísar og Pamplóna og lendum í hrakningum með Ernest Hemingway. 100 ár eru frá því fyrsta skáldsaga nóbelshöfundarins og hrakfallabálksins bandaríska kom út 1926; The Sun Also Rises eða Og sólin rennur upp. Lilja Sigurðardóttir rithöfundur hefur lengi haft mikinn áhuga á Hemingway og segir frá lygilegri ævi hans.

Viðmælendur: Steinunn G. Helgadóttir og Lilja Sigurðardóttir.

Birt

7. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,