Bara bækur

Kæri fáviti og Ursula K. Le Guin

Í upphafi fjöllum við um Ursulu K. Le Guin bandaríska furðusagnahöfundinum sem lést árið 2018, en hún átti langan og merkilegan feril baki og braut blað í því færa vísindaskáldskap og fantasíur upp um virðingarflokk. Rætt verður við aðdáanda bóka Le Guin, Þórhall Auð Helgason óperusöngvara sem hefur lesið verkin sum hver oftar en einu sinni og oftar en tvisvar. Það verða einnig nokkur viðtalsbrot úr innslagi í Lestinni á sínum tíma, stuttu eftir Le Guin lést.

Í síðari hluta þáttar beinum við sjónum okkar Frakklandi. Nýjasta bók rithöfundarins og kvikmyndagerðarkonunnar Virginie Despentes, Cher Connard frá 2022 sem hefur komið út hjá Benedikt útgáfu og ber titilinn Kæri fáviti. Við hringjum í Kristínu Jónsdóttur sem búsett er í París og ræðum bókina og Despentes. Bækur þessa alræmda franska höfundar hafa aldrei verið þýddar á íslensku áður en þær hafa alltaf vakið gríðarlegt umtal í Frakklandi. Í bókum sínum tekst hún á við viðkvæm efni; vændi, kynferðisofbeldi, fátækt, fíkn og jaðarsetningu. Kæri fáviti er bréfaskáldsaga, gerist mestu í einkaskilaboðum á instagram og er uppgjör við #metoo og alkahólisma svo fátt eitt nefnt.

Viðmælendur: Þórhallur Auður Helgason, Brynhildur Björnsdóttir, Eyja Margrét Brynjarsdóttir og Kristín Jónsdóttir.

Lesarar: Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Anna Gyða Sigurgísladóttir.

Birt

14. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,