Bara bækur

Bækur verða bíó: Röskun og Hamnet

Við tökum með okkur bækur í bíósalinn í þætti dagsins. Bækur hafa orðið efni í kvikmyndir allt frá upphafi þeirrar listgreinar. Við lítum á tvær skáldsögur í dag sem komu út á svipuðum tíma og urðu kvikmynd á svipuðum tíma. Það eru bækurnar Röskun eftir Írisi Ösp Ingjaldsdóttur sem kom út árið 2019 og varð kvikmynd fyrir skemmstu. Og skáldsagan Hamnet eftir írska rithöfundinn Maggie O’Farrell sem kom út 2020 og varð kvikmynd í lok síðasta árs.

Viðmælendur: Íris Ösp Ingjaldsdóttir, Ingibjörg Iða Auðunardóttir, Ingibjörg Ágústsdóttir og Sunna Dís Másdóttir.

Birt

28. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Bara bækur

Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.

Umsjón: Jóhannes Ólafsson.

Þættir

,