• 00:05:54Vigdís Hafliðadóttir - föstudagsgestur
  • 00:20:39Vigdís Hafliðad. - seinni hluti
  • 00:40:37Matarspjallið - salat og sólskin

Mannlegi þátturinn

Vigdís Hafliðadóttir föstudagsgestur og matarspjall um salat og sólskin

Vigdís Hafliðadóttir söngkona, leikkona, grínisti, handritshöfundur og ýmislegt fleira var föstudagsgesturinn okkar. Hún nam heimspeki við Háskóla Íslands og hefur t.d. leikið í kvikmyndinni Ljósvíkingar, áramótaskaupum og síðast í þáttunum Tuttugu og eitthvað, en hún er einnig einn höfunda, en fyrsti þátturinn verður sýndur á RÚV í kvöld. Hún hefur einnig notið mikilla vinsælda sem kynnir skemmtiþáttarins Kappsmáls á RÚV og Vigdís er meðlimur í hljómsveitinni FLOTT sem stofnuð var árið 2020 og hefur svo sannarlega slegið í gegn. Það var um nóg tala við Vigdísi í dag, en við fórum auðvitað líka með henni aftur í tímann á æskuslóðirnar eins og við gerum yfirleitt með föstudagsgestinum.

Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag talaði hún um salat og sólskin. Sumardagurinn fyrsti er næsta fimmtudag og sólin hækkar á lofti sem kallaði á salatspjallið í dag, þar sem komu fyrir hrásalöt, majonessalöt og fersk salöt eins og grískt salat.

Tónlist í þættinum í dag:

Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Aðalsteinn Ásberg)

Hvergiland / Leikhópurinn Ekki hugmynd (Vigdís Hafliðadóttir og Egill Andrason)

Visa från Utanmyra / Jan Johanson (Jan Johanson)

UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Birt

17. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Mannlegi þátturinn

Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.

netfang: [email protected]

Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.

Þættir

,