Fyrir viku síðan lögðu fjallmenn af stað inn á víðáttumikla afrétti Hrunamanna, upp til fjalla og öræfa norðan byggðarinnar, til að smala fé . Nú er leitunum lokið og í dag voru Hrunaréttir, einn af stóru haustviðburðum sveitarinnar. Þá kemur féð til byggða, fólk safnast saman og uppskeran af vinnu síðustu daga sést loksins í réttinni. Hvernig gekk smölunin, hvernig var á fjalli í ár og hvað felst í hlutverki fjallkóngsins? Jón Bjarnason bóndi í Skipholti og fjallkóngur var á línunni.
Afturelding og Breiðablik mætast í bikarúrslitum karla í fótbolta í kvöld. Breiðablik hefur einu sinni orðið bikarmeistari og leikið þrisvar til úrslita en Mosfellingar leika til bikarúrslita í fyrsta sinn og gera atlögu að sínum fyrsta stóra titli. Fjölmargir áhangendur eru nú eflaust með öndina í hálsinum þessa stundina en án þess að það halli á nokkra þá er hún Hanna Símonardóttir mögulega spenntari en margur því það er þegar klárt að hún verður móðir bikarmeistara í kvöld. Staðreyndin er nefnilega sú að hún á son í báðum liðum, þjálfara Aftureldingar og markvörð Breiðabliks, þá Magnús Má og Anton Ara Einarssyni. Hanna kom til okkar.
Um helgina varður haldið íslandsmeistaramótið í skeggvexti en út á hvað gengur það? Jón Baldur Bogason er skeggræktandi og veit allt um það og hann kom til okkar.
Það eru liðin 25 ár frá 11. september 2001, deginum sem stöðvaði heiminn um stund og breytti mörgu í kjölfarið. En hvað hefur eiginlega breyst síðan þá? Við ætlum að skoða tímann eftir árásirnar, áhrif þeirra á samfélög og stjórnmál og ræddum þetta við Egil Helgason sjónvarpsmann.
Lalli Töframaður kíkti á okkur en hann er með nýja sýningu í Tjarnabíói sem heitir Töfri Töfri og fjallar m..a um Lalla lítinn strák sem var með ýmsar greiningar en nýtti sér þær til að verða að því sem hann er í dag.
Ákveðin flökkusaga gekk á milli manna hér á landi nú síðsumars af ungu pari með Downs-heilkenni sem hafði fengið að dvelja í sumarbústað yfir eina nótt. Og þó frekar tíðindalaust hafi verið yfir þeirra dvöl þar þá eiga þau að hafa handsamað tvö tröll í grennd við bústaðinn. Þetta er allt skrýtnasta mál en svo virðist sem svo að þetta sé uppspuni og helber tröllasaga og sama saga hafi verið gefin út á bók fyrir um þremur árum síðan. Höfundur bókarinnar heitir Sigtryggur Baldursson og við slóum á þráðinn til hans í þættinum og heyrðum af tilurð sögunnar.
Í lok þáttar kom Ingvar Þór Björnsson umsjónarmaður Vikulokanna og sagði okkur frá þætti morgundagsins.