Síðdegisútvarpið

Uppsagnir í borginni, aðgerðir í Grindavík, hámhorf, jólabókaflóðið og pabbar sem óskast

Við byrjuðum í dag á Spánarspjalli við Jóhann Hlíðar Harðarson en hann er staddur í Helsinki á Norðurlandaráðsþingi.

Leitin að jarðneskum leifum Lúðvíks Péturssonar, sem féll í sprungu í Grindavík í janúar 2024, hófst í morgun. Aðgerðin á sér langan aðdraganda og mikill viðbúnaður er á vettvangi til að tryggja öryggi leitarmanna. Alma Ómarsdóttir fréttakona er á staðnum og ætlar að segja okkur betur frá því sem er búið að gerast í dag.

Og jólabókaflóðið svokallaða er löngu hafið og Bókatíðindi eru komin út rafrænt en prentaða útgáfan kemur um miðjan nóvember. Við tókum stöðuna hjá Önnu Leu Friðriksdóttur sem er bókaútgefandi hjá Sölku og formaður stjórnar Félags íslenskra bókaútgefenda.

Borgarstjórn ákvað í morgun að segja upp fimmtíu starfsmönnum borgarinnar en í heildina verður fækkað um 74 stöðugildi. Þessar aðgerðir eru hluti af stærri niðurskurðarstefnu borgarinnar, en þegar hefur tugum verið sagt upp og aðrar hagræðingaraðgerðir verið kynntar, sem tengjast til að mynda húsdýragarðinum og bókasöfnum. Silja Sóley Birgisdóttir borgarfulltrúi Sósíalista kom til okkar.

Danshöfundurinn Anna Kolfinna Kuran auglýsir eftir pöbbum á öllum aldri og ungmennum þeirra til að taka þátt í sköpun og flutningi dansverksins Pabba Reif sem verður frumsýnt í Tjarnarbíóii 2027. Engin forkunnátta í dansi eða sviðslistum er nauðsynleg, aðeins forvitni og áhugi. Hugmyndin er að ÖLL geti dansað, jafnvel pabbar, og að hægt sé að búa til tengingu við líkamann, núið og hvort annað gegnum innlifun og dans. Anna Kolfinna kíkti til okkar.

Hvað á maður að vera að hámhorfa núna þegar sólarstundum fækkar með hverjum deginum sem líður. Það er svo kósý að kúra undir undir teppi og horfa á eitthvað gott í sjónavarpinu? Ragnar Eyþórsson sjónvarpsgúru Síðdegisútvarpsins benti okkur á gott hámhorfsefni.

Kveikur er í kvöld á RÚV. Þátturinn ber yfirskriftina „Börnin og milljarðarnir“. Þær Gunnhildur Kjerúlf Birgisdóttir og Ragnhildur Þrastardóttir, ritstjóri Kveiks sögðu okkur nánar frá efni þáttarins í kvöld.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,