Síðdegisútvarpið

Loftbrú, eftirlit með fósturheimilum og Gullknötturinn

Miklar umræður hafa skapast um svokallaða Loftbrú. Íbúar á landsbyggðinni hafa getað nýtt Loftbrú við kaup á innanlandsflugi frá 2020. Hver og einn á rétt á sex flugleggjum á ári sem ríkið niðurgreiðir um fjörutíu prósent. Í gær kom fram að Eyjólfur Ármansson innviðaráðherra ætli að endurskoða boðaðar breytingar á henni. Fyrir helgi tilkynnti hann að niðurgreiðsla á innanlandsflugi færi úr 40 prósentum af heildarverði í 7000 krónur á fluglegg um áramót. Nú segir hann að til skoðunar sé að hækka þessa fjárhæð í 9000. Margir þeirra sem hafa nýtt sér loftbrúnna hafa lagt orð í belg. Á meðal þeirra er Þóra Marý Arnórsdóttir þroskaþjálfi. Hún býr með fjölskyldu sinni á Ísafirði og eiga hún og eiginmaðurinn Páll Janus Þórðarson von á sínu fjórða barni, og hefur ferðalögum því tengdu fylgt töluverður kostnaður. Þóra Marý var á línunni.

VIRK stendur fyrir ráðstefnu á Hilton Reykjavík núna á miðvikudaginn um það hvernig best sé að nýta tækifærin í forvörnum og starfsendurhæfingu til að koma í veg fyrir brottfall af vinnumarkaði og auðvelda endurkomu til vinnu. VIRK hefur lagt aukna áherslu á forvarnir og snemmbæra aðkomu undanfarin ár. Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðsstjóri forvarnasviðs VIRK, sagði okkur betur frá starfsemi VIRK og ráðstefnunni í vikunni.

Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Að þessu spyr stjórn Félags fósturforeldra í aðsendri grein á Vísi þar sem félagið segist langþreytt á slæmri stjórnsýslu í fórsturmálum og sakar Gæða- og eftirlitsstofnun ríkisins um að hafa misst sjónar á eftirlitinu sem stofnuninni á að sinna. Þess í stað einblíni GEV á skipulagsbreytingar leyfismála. Guðlaugur Kristmundsson, formaður Félags fósturforeldra, og Sigurgeir B. Þórisson framkvæmdastjóri komu til okkar.

Gullknötturinn góði, Ballon d'or, verður afhentur í kvöld við hátíðlega athöfn sem í þetta sinn verður haldin í Lundúnum - í tilefni af 70 ára afmæli verðlaunanna. Harry Kane, Lamine Yamal og Kylian Mbappe þykja allir líklegir til að hreppa verðlaunin í karlaflokki. Í kvennaflokki er það síðan Alexia Putellas og Ewa Pajor. Sparkspekingarnir Hjörvar Hafliðason og Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson spáðu í spilin með okkur.

Yfir 120 íslenskir rithöfundar hafa lýst yfir stuðningi við írska rithöfundinn Sally Rooney. Hún getur ekki tekið við höfundagreiðslum fyrir sölu á verkum sínum í Bretlandi vegna þess að hún hefur látið höfundarlaun sín renna til samtakanna Palestine Action, en bresk stjórnvöld skilgreindu samtökin sem hryðjuverkasamtök í júlí í fyrra. Yfirlýsing íslensku höfundanna birtist á vef Sniðgönguhreyfingarinnar BDS Ísland í síðustu viku. Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir myndhöfundur er á meðal þeirra sem undirrita þessa yfirlýsingu. Hún ræddi við okkur um yfirlýsinguna en einnig mikilvægi bókasafna, sem hún kallar þriðja rýmið. Hún er ein þeirra sem hefur lagt orð í belg um bókasöfnin eftir að lögð var fram tillaga í menningarráði Reykjavíkur um að fara yfir rekstur Borgarbókasafnsins og kanna hvernig nýta megi fjármuni þess betur

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir, Rúnar Róbertsson og Júlía Margrét Einarsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,