Í morgun var fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar kynnt. Þar er gert ráð fyrir hallalausum fjárlögum á næsta ári. Meðal þeirra aðgerða sem á að grípa til er hækkun á bankaskatti. Hann mun hækka um 75%. Skatturinn er nú 0,145% en fer í 0,254%. Sá skattur á að skila 13,85 milljörðum króna í ríkissjóð eftir hækkun. Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, kom til okkar.
Nýlega var fyrsti hluti nýju íþróttamiðstöðvarinnar í Árnesi tekinn í notkun og hefur þegar gjörbreytt aðstöðu fyrir skóla- og frístundastarf í sveitarfélaginu. Uppbyggingin heldur nú áfram af fullum krafti og næsta stóra skrefið verður þegar sjálft íþróttahúsið verður opnað fyrir íbúa svæðisins. Við heyrðum Haraldi Þór Jónssyni, Oddvita Skeiða- og Gnúpverjahrepps, um framkvæmdina og framtíðarsýnina að baki þessu metnaðarfulla verkefni.
Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir næsta ár sem kynnt var í morgun er gert ráð fyrir gjaldtöku við vinsælar náttúruperlur landsins, en þar eru ekki aðeins nefndir fjölsóttir ferðamannastaðir heldur einnig böð og baðlón. Markmiðið er að afla tekna til uppbyggingar, viðhalds og þjónustu á þeim stöðum sem taka á móti miklum fjölda gesta ár hvert. En hvernig á þetta fyrirkomulag að virka, hvaða staðir gætu fallið undir gjaldtökuna og hver verða áhrifin á ferðamenn og rekstraraðila? Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar hann kom í Síðdegisútvarpið.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja fagnar 50 ára starfsafmæli dagana 11. og 12. september nk. og býður nemendum sínum, fyrrum nemendum, íbúum, velunnurum, gestum og gangandi til veislu. Við heyrðum í nýskipuðum skólameistara FS, Guðlaugu M. Pálsdóttur, á eftir. Hún er kannski nýskipaður skólameistari en hefur starfað við skólann í um 30 ár.
Salka Valka lifir enn sterku lífi, tæpum hundrað árum eftir að skáldsaga Halldórs Laxness kom út. Nú hefur Unnur Ösp Stefánsdóttir samið og sett á svið einleik byggðan á sögunni í samstarfi Landnámsseturs Íslands og Þjóðleikhússins. Sýningin hefur vakið mikla athygli og er uppselt út september. Unnur Ösp var gestur okkar í dag.
Arnar Davíð Jónsson vann Opna norska meistaramótið í keilu um helgina. Mótið er eitt það sterkasta á Norðurlöndunum. Við hringjum í Arnar, sem búsettur er í Svíþjóð, og heyrðumí honum í lok þáttar.