Fríða María elskar að ferðast og í hverjum þætti tekur hún fyrir land sem hún hefur nú þegar ferðast til eða langar að koma til í framtíðinni. Í þessum og síðustu þáttum ferðumst við með henni til Suður-Afríku þar sem við lærum um landið á ferðalagi með Fríðu og fjölskyldu hennar. Í þessum fjórða og síðasta þætti syndir Fríða með selum, fer í zip-line og fuglagarð og sér hin ýmsu dýr.