
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Augu þjóðarinnar hafa beinst nær alfarið að Grindavík og hamförunum þar síðustu daga. Um miðja síðustu vikur varð hörmulegt slys þegar maður féll ofan í sprungu og í gærmorgun byrjaði að gjósa, í annað sinn á
tæpum mánuði. Þrjú hús hafa orðið eldi að bráð og hitaveitan er rofin. Bærinn hefur verið rýmdur og við blasir allt önnur mynd en fyrir mánuði, þegar fólk var að gera sér vonir um að vera mögulega komið heim fyrir jól.
Gestur Silfursins voru Grindvíkingarnir Vilhjálmur Árnason alþingismaður, Ásrún Helga Kristinsdóttir forseti bæjarstjórnar, Hörður Guðbrandsson, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, og Inga Guðlaug Helgadóttir yfirsálfræðingur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja.
Bergsteinn Sigurðsson hefur umsjón með þættinum.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.