Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Egill Helgason hefur umsjón með Silfrinu í dag. Í fyrstu eru gestir hans í þættinum þau Bergþór Ólason alþingismaður, Ásta Lóa Þórsdóttir alþingismaður, Helga Vala Helgadóttir alþingismaður og Helgi Áss Grétarsson lögfræðingur. Næst setjast hjá Agli þau Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR og Ólöf Helga Adolfsdóttir ritari Eflingar. Að lokum ræðir Egill við Eld Ólafsson, forstjóra AEX Gold.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.