
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Bergsteinn Sigurðsson hefur umsjón þessum síðasta Silfursþætti fyrir páska. Gestir hans til að ræða fréttir vikunnar eru Jökull Sólberg Auðunsson ráðgjafi, Þorsteinn Víglundsson forstjóri, Claudia Wilson lögfræðingur og Andrea Sigurðardóttir verkefnastjóri.
Í næsta hluta fær hann til sín nokkra þingmenn til að ræða sölu Íslandsbanka einkum, en það eru þingmennirnir Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir Pírötum, Orri Páll Jóhannsson VG, Jóhann Páll Jóhannsson Samfylkingu og Bryndís Haraldsdóttir Sjálfstæðisflokki. Að lokum kemur Vilhjálmur Árnason prófessor í heimspeki í þáttinn, til að ræða bankasöluna einnig, en hann er einn af höfundum siðferðiskafla Rannsóknarskýrslu Alþingis um bankahrunið.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.