Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Egill Helgason hefur umsjón með Silfrinu í dag. Fyrst ræðir hann um landsfund Sjálfstæðisflokksins við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttamann, Ólaf Arnarsson blaðamann og Stefán Einar Stefánsson blaðamann. Við panelinn bætast svo Hanna Katrín Friðriksson alþingismaður, Jóhann Páll Jóhannsson alþingismaður og Vilhjálmur Bjarnason fyrrverandi alþingismaður. Að lokum ræðir Egill við Sigrúnu Huld Þorgrímsdóttur hjúkrunarfræðing.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.