
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þætti dagsins. Fyrst til að ræða fall Fréttablaðsins og stöða íslenskra fjölmiðla koma til hennar þau Björgvin Guðmundsson almannatengill, Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélags Íslands. Þá til að ræða féttir vikunnar eru þau Katrín Ólafsdóttir hagfræðingur, Íris Róbertsdóttir bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Sigríður Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra (D) og Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar situr áfram. Að lokum er svo viðtal við Hörpu Birgisdóttur, en hún er prófessor í sjálfbærni bygginga við Álaborgarháskóla.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.