
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með þessum þætti. Til að ræða fréttir vikunnar koma til hennar Jóhannes Þór Skúlason framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins. Í síðari hluta þáttarins verður rætt um utanríkismál og stríðið í Úkraínu. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er stödd í Munchen og verður í viðtali í þættinum. Einnig þau Friðrik Jónsson varnarmálasérfræðingur, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fv. utanríkisráðherra, Jón Ólafsson prófessor og Óskar Hallgrímsson ljósmyndari sem staddur er í Úkraínu.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.