Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Egill Helgason hefur umsjón með Silfrinu í dag. Til að ræða málefni líðandi stundar verða gestir hans í dag þau Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður, Gunnar Smári Egilsson framkvæmdastjóri Sósíalistaflokksins, Bryndís Haraldsdóttir alþingismaður og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir alþingismaður. Í seinni hluta þáttar ræðir Egill svo við David Beasley, framkvæmdastjóra WFP, Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.