Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir hefur umsjón með Silfrinu í dag. Í fyrstu talar hún við Írisi Kristinsdóttur, sviðsstjóra verndarsviðs Útlendingastofnunar. Til að ræða fréttir vikunnar koma svo þau Guðríður Lára Þrastardóttir lögfræðingur, Sigríður Andersen fv. dómsmálaráðherra, Ingólfur Bjarni Sigfússon fréttamaður í Kveik og Jón Ólafsson sérfræðingur í málefnum Rússlands, í þáttinn. Að lokum er rætt við Maximilian Conrad, stjórnmálafræðiprófessor við Háskóla Íslands.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.