
Silfrið
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.
Sigríður Hagalín Björnsdóttir sér um Silfrið í dag. Fyrst koma til hennar að ræða málefni vikunnar Bjarni Jónsson, formaður utanríkismálanefndar (V), Brynja Huld Óskarsdóttir, öryggis- og varnarmálasérfræðingur, Gunnar Þorri Pétursson, rússneskuþýðandi og bókmenntafræðingur, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og Árni Þór Sigurðsson sendiherra Íslands í Rússlandi verður einnig á línunni. Í síðari hluta þáttarins kemur svo Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fv. utanríkisráðherra (S) og fv. staðgengill sérstaks fulltrúa aðalframkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna í Írak.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.