Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Egill Helgason sér um Silfrið í dag. Í fyrstu til að ræða fréttir vikunnar eru þau Guðmundur Gunnarsson blaðamaður, Sigríður Á Andersen fyrrverandi ráðherra, Guðmundur Auðunsson hagfræðingur, Gísli Freyr Valdórsson blaðamaður, Katrín Oddsdóttir lögfræðingur og Anna Sigrún Baldursdóttir framkvæmdastjóri á Landspítala. Síðan fær Egill til sín Ólaf Þ. Harðarson prófessor til að ræða kosningarnar framundan. Að lokum kemur Dr. Herdís Kjerúlf Þorgeirsdóttir lögfræðingur í þáttinn og ræðir um kaup Elons Musk á Twitter.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.