Stjórnmálauppgjör í sumarbyrjun
Síðasta Silfur fyrir sumarið. Við gerum upp veturinn í stjórnmálunum og spáum í næstu skref. Þá koma Evrópuþingkosningarnar við sögu.
Egill Helgason hefur umsjón með þessum þætti Silfurs. Fyrst til að fara yfir fréttir vikunnar koma til hans þau Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður Samfylkingarinnar, Runólfur Ágústsson framkvæmdastjóri, Sigríður Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra, Sigurður Pétursson sagnfræðingur. Í síðari hluta er svo viðtal við Gunnar Þorra Pétursson, rússneskufræðing.

Sigríður Hagalín Björnsdóttir, Valgeir Örn Ragnarsson og Bergsteinn Sigurðsson fá til sín gesti til að kryfja með sér atburði liðinnar viku og pólitískt landslag hverju sinni.