Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Ísland stefnir á HM, upphaf Stöðvar 2 og Póstkort

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta spilar á eftir mikilvægan leik við Króatíu í fyrstu umferð umspilsins um sæti á HM. Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei komist á HM en er nú tveimur einvígum frá því. Víðir Sigurðsson íþróttafréttamaður kom til okkar og spáði í spilin.

Í dag eru 40 ár frá því að Stöð 2, sáluga, var hleypt af stokkunum. Frjáls fjölmiðlun var orðin að veruleika þarna árið 1986 en Bylgjan hafði farið í loftið í lok ágúst, um mánuði fyrr. Jón Óttar Ragnarsson og Hans Kristján Árnason voru mennirnir á bakvið þrekvirkið að koma stöðinni á koppinn. Við fengum Hans Kristján til okkar til að fara yfir sögurnar og það sem gekk á við stofnun stöðvarinnar.

Belgíski eðlisfræðingurinn Francis Halzen hlaut í vikunni Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði fyrir rannsóknir sínar á öreindum á Suðurskautinu. Halzen hefur fundið út hvernig nota má suðurskautsísinn til að greina það sem kallast fiseindir. En hvaða máli skiptir það eiginlega og hvernig nýtast þessar upplýsingar okkur? Ég er ekki með svörin við því en það er hann Jón Emil Guðmundsson stjarneðlisfræðingur aftur á móti. Við heimsóttum hann á skrifstofu hans í VR-III í Háskóla Íslands og fengum hann til að útskýra þessa rannsókn betur.

Reglulega fá kennarar beiðnir frá foreldrum og nemendum um að þeir þurfi ekki að taka þátt í kennslustund dagsins sökum þess að fara á fram keppni seinna um daginn, eða að keppt hafi verið daginn áður og þar með sé ekki hægt að taka þátt í skólasundi eða íþróttum vegna harðsperra og strengja. Davíð Már Sigurðsson, sund- og íþróttakennari, vill opna umræðu um þetta og byrjaði á því að senda grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Davíð Már ræddi þetta við okkur.

Íslenska heimildarstuttmyndin Póstkort hefur öðlast þátttökurétt til Óskarsverðlauna. Myndin fjallar um Kristinn Jónsson sem gekk Jakobsveginn árið 2016. Hann gekk í 46 daga og skrifaði eitt póstkort á dag til konunnar sinnar, en þau vou þá búin að vera saman í 46 ár. Freyja dóttir þeirra leikstýrði myndinnni sem endaði á að vinna tvenn Edduverðlaun. Freyja og Kristinn mættu til okkar.

Bækur eftir kanadísk-íslenska rithöfundinn Anne Carson eru nánast ófáanlegar á Íslandi en þær hafa selst eins og heitar lummur eftir að tilkynnt var í gær að Carson hlyti Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Einar Björn Magnússon, eigandi Skáldu bókabúðar, var á línunni.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,