
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Það andar köldu á milli Volodimírs Selenskís Úkrínuforseta og Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í kjölfar þess að sá síðarnefndi létti tímabundið á refsiaðgerðum gegn Rússlandi vegna dísilolíu og sagði að Úkraína ætti að fá sér nýjan forseta til að semja um frið. Selenskí segir aðeins mögulegt að halda kosningar ef Úkraína fær algjört vopnahlé í 60 daga. Pútín segist aðeins reiðubúinn að veita þeim einn dag. Hallgrímur Indriðason fréttamaður ræddi málin við okkur.
Framfarafélag Vestfjarðar hvetur stjórnvöld til að endurmeta skattabreytingar sem valda auknum álögum á skemmtiferðaskip sem hingað koma. Á Ísafirði hefur farþegum fækkað um fjörutíu þúsund milli ára og bókanir benda jafnframt til verulegs samdráttar í skipakomum til Ísafjarðar næstu ár. Samkvæmt greiningu má rekja 55% af erlendri kortaveltu sumarsins hjá söluaðilum á Ísafirði til skipakomanna. Í nágrannabyggðum mælist erlend kortavelta 52% meiri þá daga sem skip eru í höfn á Ísafirði. Bæjarins besta greindi frá. Guðmundur Fertram Sigurjónsson talsmaður Framfarafélags Vestfjarða var á línunni.
Norska persónuverndarstofnunin hefur sektað dótturfyrirtæki Microsoft um 8,5 milljónir evra, eða því sem nemur ríflega 1,1 milljarði íslenskra króna, vegna meðferðar persónuupplýsinga frá hinsegin stefnumótaforritinu Grindr. Áður hefur Grindr verið sektað fyrir að deila með ólöglegum hætti upplýsingum um notendur til þriðja aðila. Upplýsingar sem miðillinn hefur að geyma um notendur sínar eru afar viðkvæmar en forritið gerði þær að tekjulind í starfsemi sinni án þess að þeir væru upplýstir um það. María Rún Bjarnadóttir, sérfræðingur hjá lagadeild Háskólans í Reykjavík, hefur sérhæft sig í mörkum mannréttinda- og tækniréttar. Hún hefur fylgst með þessu máli og var á línunni.
Á miðvikudag eiga landsmenn von á djúpri lægð sem gæti valdið óskunda og eignatjóni. Veðurstofan hefur gefið út gular og appelsínugular viðvaranir en þær fyrstu taka gildi klukkan sex um morguninn. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að svo djúpar lægðir séu fáséðar hér við land og að grannt þurfi að fylgjast með þróuninni næstu tvo til þrjá sólarhringa. Birta Líf Kristinsdóttir veðurfræðingur kíkti til okkar.
Stytta á afgreiðslutíma endurvinnslustöðva Sorpu á Dalvegi í Kópavogi og í Jafnaseli í Breiðholti frá og með 1. nóvember nk. Endurinnslustöðvarnar á Dalvegi og í Jafnaseli eru svokallaðar litlar endurvinnslustöðvar og var þjónusta þar dregin saman fyrr á þessu ári en þá var ákveðið að hætta að taka á móti rúmfreku rusli. Nú á að breyta opnunartímanum og opna ekki fyrr en í hádeginu í stað kl. 9 núna. Móttekið magn á stöðvunum hefur dregist saman um 60%, og heimsóknir á morgnana mun færri en eftir hádegið. Gunnar Dofri Ólafsson hjá Sorpu var í símanum.
Leikfélag Mosfellssveitar frumsýndi á föstudaginn rokksöngleikinn Vorið vaknar eftir Steven Sater með tónlist eftir Duncan Sheik. Söngleikurinn var frumsýndur árið 2006 á Broadway og hlaut 8 Tony verðlaun, meðal annars verðlaun fyrir besta söngleik ársins. Leikararnir Emil Grettir Ólafsson og Elísabet Tinna Haraldsdóttir komu í Síðdegisútvarpið og sögðu okkur af þessu verki.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.