
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Hvernig samfélag viljum við skapa saman? Tölum saman er verkefni sem byggir á þeirri einföldu hugmynd að samfélagið verði sterkara þegar við gefum okkur tíma til að hlusta hvert á annað, ræða saman og taka virkan þátt í að móta framtíðina. Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. Samtalið fer fram á laugardaginn. Samtal varð til að frumkvæði Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, sem jafnframt er verndari verkefnisins. Til að segja okkur nánar af verkefninu og hvernig hægt er að taka þátt kom til okkar Katla Ólafsdóttir, formaður Stúdentaráðs.
Fregnir af því að Starfsgreinasamband Íslands, Efling og Samiðn hefðu í gærkvöldi skrifað undir framlengingu kjarasamninga við Samtök atvinnulífisins komu mörgum í opna skjöldu. Tólf mánaða verðbólga mælist 5,9%, stýrivextir standa í 8% og VR, LÍV og Fagfélögin hafa fengið umboð til að slíta samningum við SA á morgun. En hvers vegna ákvað breiðfylkingin að framlengja kjarasamningana? Við ræddum við Sólveigu Önnu Jónsdóttur formann Eflingar.
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan hlutu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð við að aðskilja og mynda sameindir sem eru eins að öðru leyti en því að þær eru spegilmyndir hvor annarrar. Uppgötvanir þeirra tengjast meðal annars ráðgátum um uppruna lífs á jörðu og hafa stuðlað að framförum í lyfjaframleiðslu. Ágúst Kvaran prófessor emeritus í eðlisefnafræði kom til okkar og útskýrði þetta nánar.
Ný greining Samtaka Iðnaðarins sýnir að gjaldheimta af bifreiðum hérlendis er langt umfram útgjöld til viðhalds og uppbyggingar vegasamgangna. Í fyrra var munurinn á gjaldheimtu og útgjöldum til vegamála um 21 ma.kr. og horfur eru fyrir svipuðum mun í ár. Talað hefur verið um innviðaskuld þegar kemur að vegakerfinu og hefur ríkisstjórnin ítrekað sagt að unnið verði á henni og lagt hefur verið meira í málaflokkinn. En samt er þessi munur. Til að ræða þessa greiningu kom til okkar Ingólfur Bender aðalhagfræðingur Samtaka Iðnaðarins.
Umdeilt þykir hvort frumvarp Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra, sem felur í sér svokallaða leigubremsu, muni halda niður leiguverði eða hækka það. Formaður Leigjendasamtakanna fagnaði frumvarpinu en Ásgeir Jónsson Seðlabankastjóri sagði í morgun að áformin væru heimskuleg og gætu gert illt verra. Við ræddum frumvarpið við Hildi Ýr Viðarsdóttur, formann húseigendafélagsins.
Í ár eru liðin 40 ár frá því að Leiðtogafundurinn í Höfða var haldinn. Þar hittust Ronald Reagan forseti Bandaríkjanna og Mikhail Gorbatsjev leiðtogi Sovétríkjanna og var aðdragandinn aðeins 12 dagar. En hvaða áhrif hafði fundurinn á sálarlíf og sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar og hverjar voru afleiðingar hans? Sindri Freysson er einn handritshöfunda heimildarþáttanna Stríð og friður í Reykjavík sem eru sýndir á RÚV. Hann ræddi þennan merkilega atburð við okkur undir lok þáttar.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.