
Síðdegisútvarpið
Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Á föstudaginn fór fram söfnunarþáttur á RÚV þar sem þjóðin var beðin um að styðja við bakið á Reykjalundi sem vantar fé til þess endurbæta óheilnæmt húsnæði endurhæfingadeildar. Fjárþörfin er um 300 milljónir en takmarkið í söfnuninni var 100 milljónir. Nú er ljóst að safnast hafa ríflega 122 milljónir. Júlíus Þór Jónsson formaður Hollvinasamtaka Reykjalundar sem stóðu að þessari söfnun var á línunni.
Hvernig stendur á því að með öllum þessum fjölbreyttu og víðtæku samskiptaháttum upplifum við aukið samskiptaleysi, firringu og einmanaleika? Það er ákveðin þversögn fólgin í því. Við ræddum við Viðar Halldórsson, prófessor í félgsfræði, um málið og nýju bókina hans sem fjallar um neikvæð áhrif skjábyltingarinnar á samfélagið.
Stríð Úkraínu og Rússlands hefur í síauknum mæli áhrif á öryggi ríkja Atlantshafsbandalagsins. Við sjáum rússneska dróna þvælast æ oftar yfir landamæri NATO og rússnesk stjórnvöld styrkja hernaðarlega samvinnu sína við Hvíta-Rússland . Á sama tíma hefur NATO verulega bætt í varnir sínar í Austur-Evrópu, við landamæri Rússlands. Við ræddum við Albert Jónsson varnarmálasérfræðing.
Foreldrar og nemendur fengu nýlega niðurstöður úr lesfimiprófum. En hvað er þessi lesfimi eiginlega og skiptir hún einhverju máli? Eru þetta bara hraðlestrarpróf og segir lesfimin okkur eitthvað um lesskilning? Auður Soffíu Björgvinsdóttir lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands kom til okkar og sagði okkur frá lesfiminni og fræðslufundi sem verður haldinn í kvöld.
Diljá Ámundadóttir Zoëga varaþingmaður Viðreisnar spyr í skoðanagrein á Vísi afhverju taka ekki fleiri karlar þátt í umræðunni um kynferðislegt ofbeldi? Nefnir hún t.d. umræðu um mál ungrar konu sem segir að sjö karlkyns nemendur í Cornell háskólanum, félagar í bræðralagi hafi byrlað sér ketamín og nauðgað sér. Málið hefur vakið mikla athygli síðustu daga eftir að konan höfðaði mál vegna þess að mennirnir voru ekki sóttir til saka á sínum tíma. Hún bendir á að nokkrar íslenskar þingkonur hafi látið sig þetta varða með færslum á samfélagsmiðlum en hún sakni að karlar geri slíkt hið sama. Til að ræða þetta kom til okkar Andrés Proppé Ragnarsson, stofnandi og stjórnandi Heimilisfriðs.
Okkar maður á Suður Spáni var klár í sitt hálfs mánaðarlega Spánarspjall. Jóhann Hlíðar Harðarson ræddi við okkur um nýboðaðar kosningar á Spáni og sagði okkur af frægasta flóttamanni Spánar.

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.