Síðdegisútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Breytingar á leigubílamarkaði, frásagnir Grindvíkinga og fjölgun brota vegna gervigreindar

Veigamiklar breytingar voru nýverið gerðar á reglugerð um leigubifreiðaþjónustu. Breytingarnar lúta meðal annars að eftirliti með bílstjórum, verðskrá og próftöku. Daníel Einarsson, formaður Bandalags íslenskra leigubifreiðastjóra, kom til okkar til að ræða þessar breytingar.

Flensutímabilið er hafið ef marka má langar raðir hjá Læknavaktinni. En senn líður að farið verði að bjóða bólusetningu fyrir inlúensunni. En hvenær verður það og er það orðið of seint? Við heyrðum í Sigríði Dóru Magnúsdóttur, forstjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, en hún hefur bent fólki á að nota gömlu húsráðin fyrst áður en leitað er á Læknavaktina vegna álags þar.

Mikilvægt er að varðveita frásagnir Grindvíkinga af jarðhræringunum á Reykjanesskaga sem hófust árið 2020. Þetta kemur fram á vef Grindavíkur þar sem greint er frá því að bæjarfélagið ásamt Þjóðminjasafni Íslands og Minja- og sögufélagi Grindavíkur leiti nú að einstaklingum til að deila upplifunum sínum af þessum atburðum. Sigurlaug Dagsdóttir þjóðfræðingur hjá Þjóðminjasafninu sagði okkur nánar frá þessu verkefni.

Tilkynningar um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot á fyrri helmingi ársins voru 93, og fjölgaði þeim um 60% samanborið við fyrstu sex mánuði síðasta árs. Þetta kemur fram í skýrslu ríkislögreglustjóra um tilkynningar um kynferðisbrot. Á landsvísu voru 346 kynferðisbrot tilkynnt til lögreglu frá janúar til júní og hafa þau ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá árinu 2021. Alda Hrönn Jóhannsdóttir, yfirlögfræðingur Lögreglustjórans á Suðurnesjum, kom til okkar.

Umfjöllun Kveiks um lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum vakti hörð viðbrögð í síðustu viku. Ein þeirra sem hefur tjáð sig um umfjöllunina er Rannveig Tenchi Ernudóttir sem starfað hefur á hjúkrunaheimilum. Hún segir að þegar kemur að öldruðum sé mikilvægt að viðhalda færni, getu, virkni, ábyrgð, hlutverkum og sjálfræði fólks alla ævi. Eldra fólk sé ekki einsleitur hópur; heilsa, fjárhagur og stuðningsnet eru ólík. Þjónusta á því að ráðast af þörf fremur en fæðingarári og kerfið á að grípa vel þau sem raunverulega þurfa á stuðningi að halda. Við heyrðum í Rannveigu.

Nýtt frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra til breytinga á húsaleigulögum var lagt fram fyrir helgi. Þar er meðal annars talað um svokallaða leigubremsu og að tilgreina skuli breytingar á leiguverði í leigusamningi. Fjárhæð húsaleigu megi ekki breyta nema rekstrarkostnaður hafi hækkað verulega. Slíkar hækkanir yrði að kynna með þriggja mánaða fyrirvara. En hvernig líst Samtökum leigjenda á það sem fram kemur í frumvarpinu? Formaður félagsins, Yngvi Ómar Sigrúnarson, fór yfir það með okkur.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Síðdegisútvarpið

Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.

Þættir

,