Í morgun var greint frá á fotbolti.net að skemmdarverk hefðu verið unnin á heimavelli KR. Þar hafði rauðri málningu verið slett og máluð yfir varamannaskýli og fleira og Vikes skrifað. Það er það sem Víkingar eru stundum kallaðir þegar slanguryrði er notað. Liðin mætast í toppslag Bestu deildarinnar í dag. Víkingar hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna þessa. Heimir Gunnlaugsson formaður knattspyrnudeildar Víkings var á línunni hjá okkur.
Mikilvægum áfanga var nýlega náð í uppbyggingu Vaðölduvers þegar samsetningu 14. vindmyllunnar lauk og allar þær myllur sem áætlað var að reisa á þessu ári eru nú komnar upp. Þetta var flókið og viðamikið verkefni og hver skyldi nú hafa verið mesta áskorunin. Við slóum á þráðinn til Sigurgeirs Björns Geirssonar yfirverkefnastjóra Vaðölduvers.
Uppsagnir á fjölmiðlum og brotthvarf kvöldfrétta Sýnar vekja upp spurningar um stöðu fjölmiðla hér á landi og framtíð þeirra. Hvernig er hægt að styrkja íslenska fjölmiðla betur og er það hlutverk stjórnvalda að bregðast við og bjarga málunum? Við ræddum við Loga Einarsson ráðherra málaflokksins í þættinum í dag.
Söngleikurinn Ormstunga sem byggir á frægri sögu Gunnlaugs ormstungu, Hrafns Önundarsonar og Helgu hinnar fögru hefur verið í sýningu í Þjóðleikhúsinu frá byrjun árs og notið mikilla vinsælda. Höfundar verksins eru Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson, en Hafsteinn semur einning tónlistina í söngleiknum. Það sem meira er er að verkið var upphaflega til í Listaháskólanum en hefur nú ratað rækilega á stóra sviðið. Þeir Hafsteinn og Óliver komu í Síðdegisútvarpið í dag.
Duane "Keffe D" Davis fyrrverandi glæpaforingi var í gær sakfelldur fyrir að skipulegggja morðið á rapparanum Tupac Shakur sem var skotinn til bana í september árið 1996. Í þrjátíu ár hefur morðið verið eitt frægasta óupplýsta sakamál Bandaríkjanna. Hreyfing komst á rannsóknina árið 2019 þegar Davis gaf út bók þar sem hann viðurkenndi aðild að morðinu. Hann var síðar ákærður og hafa allir helstu miðlar fylgst með réttarhöldunum síðustu vikur. Rappsérfræðingurinn Daníel Ólafsson, einnig þekktur sem DJ Danni Deluxe, kom til okkar og fór yfir þetta mál.
Ragnar Eyþórsson, okkar maður í sjónvarpsglápinu kom til okkar og fór yfir það sem áhugavert er á streymisveitum og sjónvarpi.