Heimsglugginn

„Óheppilegt að vopnahlé sé kennt við Versali“

Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur var gestur Boga Ágústssonar í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Þeir ræddu meðal annars nýlokinn leiðtogafund G7-ríkjanna í Evian í Frakklandi. Þar var eindregnum stuðningi lýst við Úkraínumenn í vörn þeirra gegn innrásarher Rússa. Erlingur telur óheppilegt ef vopnahléssamkomulag Bandaríkjanna og Írans verður kennt við Versali í ljósi þess friðarsamningarnir eftir fyrri heimsstyrjöld voru gerðir þar og eru af mörgum taldir ein af meginástæðunum fyrir seinni heimsstyrjöldinni.

Erlingur og Bogi ræddu strategíska stöðu Bandaríkjanna og Írans. Margir fréttaskýrendur telja þrátt fyrir hernaðarlega yfirburði hafi Bandaríkin beðið strategískan ósigur og staða klerkastjórnarinnar á Íran á margan hátt sterkari en áður en Bandaríkin og Ísraelsmenn hófu árásir á Íran í febrúarlok í ár.

Þá var rætt um aukakosningarnar til breska þingsins í dag. Andy Burnham reynir komast á þing þar sem hann hyggst reyna velta Keir Starmer úr sessi sem leiðtoga Verkamannaflokksins og forsætisráðherra.

Birt

18. júní 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,