Heimsglugginn

Glæpagengi í Svíþjóð, vandræði Ernu Solberg og Take the money and run

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu einkum norræn málefni við Boga Ágústsson í Heimsglugga vikunnar á Morgunvakt Rásar 1. Fyrst um ofbeldisölduna í Svíþjóð þar sem 37 hafa verið myrtir í skotárásum á árinu, langflestir í átökum glæpagengja eða innbyrðis uppgjöri eins og í Foxtrott-glæpaklíkunni þessa dagana. Þá var rætt um vandræði norskra stjórnmálamanna, tveir ráðherrar hafa þurft segja af sér og tveir aðrir eru í vandræðum. Bæði Anniken Hvitfelt, utanríkisráðherra, og Erna Solberg, fyrrverandi forsætisráðherra, eru í vandræðum vegna hlutabréfaviðskipa eiginmanna sinna.

Take the Money and Run, hirtu peningana og forðaðu þér, er heiti á listaverki sem danski myndlistamaðurinn Jens Haaning gerði fyrir Kunsten Museum of Modern Art í Álaborg. Safnið sendi listamanninum 538 þúsund danskar krónur í seðlum því listamaðurinn hugðist líma seðlana við strigann á málverkum sem áttu tákna meðallaun í Danmörku og Austurríki. En Haaning hirti peningana og sendi safninu tvo tóma ramma. Lasse Andersen, forstöðumaður Kunsten, taldi listamanninn hafa brotið samning sem gerður var um verkin. Safnið fór því í mál við Haaning og bæjarréttur Kaupmannahafnar dæmdi í vikunni listamaðurinn ætti skila peningunum.

Af þessu tilefni lauk Heimsglugganum með lagi Steve Miller Band, Take the Money and Run.

Frumflutt

21. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,