Heimsglugginn

Skandalar í Bretlandi og Danmörku

Tveir pólitískir skandalar í grannlöndum okkar voru til umræðu í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1. Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu við Boga Ágústsson.

Annars vegar ráðvillt bresk ríkisstjórn og fálmkennd viðbrögð í upphafi COVID-faraldursins eins og komið hefur fram í vitnaleiðslum nefndar sem falið var rannsaka viðbrögð breskra stjórnvalda við farsóttinni.

Hins vegar njósnamálið í Danmörku þar sem Claus Hjort Frederiksen, fyrrverandi varnarmálaráðherra; Lars Findsen, sem var yfirmaður leyniþjónustunnar; og fleiri voru ákærðir fyrir landráð. Ákæruvaldið hefur fellt málið niður og Mette Frederiksen og ráðherrar í stjórnum hennar mega sitja undir mjög harðri gagnrýni stjórnarandstöðunnar vegna þess hvernig haldið var á málinu.

Frumflutt

2. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,