Heimsglugginn

Sektir fóru til að greiða bónusa

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson héldu áfram ræða um málefni bresku póstþjónustunnar og stærsta réttarfarshneyksli í sögu landsins á síðari tímum þegar tæplega eitt þúsund útbússtjórar í pósthúsum voru sóttir til saka fyrir skjalafals og þjófnað og á áttunda hundrað voru sakfelldir. Næstum öll voru saklaus, sökudólgurinn var Horizon, gallað bókhaldskerfi sem Fujitsu bjó til fyrir breska póstinn.

Nick Read, forstjóri Póstsins, sat fyrir svörum hjá viðskiptanefnd þingsins og gat fáu svarað nema hann viðurkenndi greiðslur sem útibússtjórar voru krafðir um hefðu mögulega verið notaðar til greiða bónusa yfirmanna póstsins.

Þá var rætt um frumvarp sem neðri málstofa breska þingsins samþykkti í gærkvöld um vísa hælisleitendum sem koma með bátum til Bretlands til Rúanda. Lávarðadeild þingsins fær frumvarpið til afgreiðslu og viðbúið er þar verði gerðar breytingar á því enda er málið er afar umdeilt og margir telja frumvarpið brjóta í bága við alþjóðalög og mannréttindasamninga.

Þá var rætt um nýafstaðnar forsetakosningar á Taívan og þingkosningar sem verða í apríl á Indlandi.

Frumflutt

18. jan. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,