Heimsglugginn

Stefnir í afhroð gömlu flokkanna á Englandi

Kosið er í Bretlandi í dag, þingkosningar í Skotlandi og Wales og sveitarstjórnarkosningar víða í Englandi. Þar er Reform, Umbótaflokki Nigels Farage, spáð mikilli fylgisaukningu. Flokkurinn er yst til hægri í breskum stjórnmálum og segja Grænir séu lengst til vinstri og þeim er einnig spáð fylgisaukningu. Frjálslyndir demókratar búast við góðum úrslitum en flokkarnir sem einu sinni báru höfuð og herðar yfir aðra breska stjórnmálaflokka mega muna fífil sinn fegri. Þetta eru Íhaldsflokkurinn og Verkamannaflokkurinn sem eiga í vök verjast. Reform og Plaid Cymru, sem vill Wales verði sjálfstætt ríki í framtíðinni, keppast um verða stærsti flokkurinn í Senedd, þingi Wales. Verkamannaflokkurinn hefur stjórnað Wales í næstum þrjá áratugi en er spáð þriðja sæti þessu sinni.

Skoski þjóðarflokkurinn, SNP, virðist hins vegar eiga góða möguleika á halda völdum. Sólveig Jónsdóttir, rithöfundur og blaðamaður, og Bogi Ágústsson ræddu um skosk stjórnmál og kosningabaráttuna.

Birt

7. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,