Heimsglugginn

Norræn öryggismál og fleira

Norræn öryggismál voru í brennidepli í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 og rætt um norrænan sjónvarpsþátt um varnar- og öryggismál. Þátturinn var á dagskrá allra ríkissjónvarpsstöðva Norðurlanda á miðvikudagskvöld, nema RÚV. Þarna voru meðal annarra Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, Anders Adlercreutz, ráðherra norrænnar samvinnu í Finnlandi og fleiri ráðamenn og sérfræðingar. Í Heimsglugganum var einnig rætt um utanríkisráðherrafund NATO, freigátukaup Svía, stjórnarmyndunarviðræður í Danmörku, aukna bjartsýni Úkraínumanna, heimsókn útsendara Trumps til Grænlands og stuttlega um heimsóknir til Kína þar sem svo virðist sem bæði Trump og Pútín hafi farið bónleiðir til búðar.

Birt

21. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,