Heimsglugginn

Sterk staða Trumps, kosningar í fjölmennustu múslimaríkjum heims

Jón Óskar Sólnes var gestur Heimsgluggans þessu sinni og þeir Bogi Ágústsson ræddu stöðuna í bandarískum stjórnmálum. Jón Óskar, sem var eitt sinn fréttamaður RÚV, hefur búið í Washington síðustu ár og fylgist vel með stjórn- og þjóðfélagsmálum. Hann telur staða Donalds Trumps meðal Repúblikana miklu sterkari en þegar hann tilkynnti forsetaframboð fyrir hálfu öðru ári. Demókratar eigi undir högg sækja vegna mikillar ásóknar flótta- og förufólks frá Mið- og Suður-Ameríku. Þá snúist umræðan fyrir forsetakosningar í haust miklu leyti um aldur Joes Bidens forseta.

Í lokin ræddi Bogi kosningar í tveimur fjölmennustu ríkjum múslima í heiminum, Indónesíu og Pakistan, sem bæði teljast lýðræðisríki. Lýðræðið er þó langt í frá fullkomið og bæði ríkin hafa búið langtímum saman við einræði og stjórn hers eða herforingja.

Frumflutt

15. feb. 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,