Heimsglugginn

Þetta verða erfið fjögur ár, Milei kosinn forseti Argentínu

Þetta verða erfið fjögur ár, sagði Helgi Hrafn Guðmundsson sagnfræðingur um Argentínu eftir Javier Milei var kjörinn forseti um síðustu helgi. Þeir Bogi Ágústsson ræddu saman um land og þjóð. Helgi Hrafn bjó í Argentínu í um áratug, lærði og starfaði þar. Hann segir efnahagsstefnuna lengi hafa einkennst af skammtímahugsun. Ástandið afar slæmt, verðbólga um 200 prósent, mjög ströng gjaldeyrishöft og gjaldmiðillinn nánast verðlaus. Helgi Hrafn segir Milei fyrst og fremst frjálshyggjumann af austurríska skólanum, hann öfgakenndur, vilji einkavæða allt til koma í veg fyrir ríkið eyði um of og leggja niður þann vísi velferðarkerfi sem er í landinu.

Fjörutíu og fimm milljónir búa í Argentínu, landið er ríkt af náttúruauðlindum, millistéttin er stór, margir starfa hjá hinu opinbera en 40 prósent landsmanna teljast vera undir fátæktarmörkum og þá spyrja af hverju þetta fólk kjósi mann sem vill leggja niður velferðarkerfið.

Helgi Hrafn segir þegar fólk orðið langþreytt á ástandi sem virðist engan enda ætla taka þá freisting kjósa mann sem tali tæpitungulaust og lofi hefja landið til vegs og virðingar og bæta efnahaginn. Milei hafi verið álitsgjafi í fjölmiðlum og boðið fram skyndilausnir sem eigi laga ástandið.

Frumflutt

23. nóv. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,