Heimsglugginn

Saga Haítí, öryggismál á norðurslóðum og bresk stjórnmál

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Bogi Ágústsson ræddu um Haítí og langa sorgarsögu landsins. Haítí var frönsk þrælanýlenda og annað landið í Ameríku sem lýsti yfir sjálfstæði á eftir Bandaríkjunum eftir afar blóðuga þrælauppreisn. Fátækt, spilling, stjórnleysi og náttúruhamfarir hafa orðið óhamingju landsins vopni. Svo heita algjört stjórnleysi og ringulreið á Haíti og hætta á hungursneyð.

Þá ræddu þau um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum eftir inngöngu Svía í NATO. Jens Stoltenberg framkvæmdastjóri NATO segir Norðurlöndin hafi ekki haft sameiginlegar varnir frá því á tímum Kalmar-sambandsins og NATO-aðild Svía styrki norrænt samstarf mjög.

síðustu var rætt um bresk stjórnmál þar sem Íhaldsflokkurinn á í vök verjast. Þingmaðurinn Lee Anderson gekk til liðs við hægri þjóðernisflokkinn Reform og ummæli stærsta styrktaraðila Íhaldsflokksins eru talin rasísk og kvenfjandsamleg. Rishi Sunak forsætisráðherra hefur verið hvattur til skila aftur 10 milljónum punda sem auðmaðurinn Frank Hester gaf flokknum eftir dagblaðið Guardian sagði frá ummælum hans.

Frumflutt

14. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,