Heimsglugginn

Martti Ahtisaari minnst og stríð Hamas og Ísraels

Þórunn Elísabet Bogadóttir og Björn Þór Sigbjörnsson ræddu þessu sinni við Boga Ágústsson um Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseta Finnlands, sem lést fyrr í vikunni. Ahtisaari hlaut friðarverðlaun Nóbels 2008 fyrir áratuga starf í mörgum heimshlutum þar sem hann reyndi setja niður deilur og sætta stríðandi fylkingar. Alexander Stubb, fyrrverandi forsætisráðherra Finnlands og forsetaframbjóðandi, sagði um Ahtisaari: Heimurinn hefur hugsanlega aldrei þurft eins mikið á manni eins og honum halda.

Ahtisaari vann meðal annars friði á milli Ísraelsmanna og Palestínumanna. Hann gagnrýndi stærstu ríki heims og hvernig þau beittu sér í deilunni þar sem hugur fylgdi ekki máli. Hann sagði friður væri spurning um vilja. Allar deilur væri hægt leysa.

Það virðist ekki mikill friðarvilji fyrir botni Miðjarðarhafs þessa stundina. Eftir skelfilega hermdarverkaárás Hamas á Ísrael og þau hryllilegu grimmdarverk sem þá voru framin hefur herafli Ísraels ráðist af mikilli hörku gegn Gasa-svæðinu þar sem á þriðju milljón Palestínumanna býr á svæði sem er á stærð við höfuðborgarsvæðið. Síðasta voðaverkið var árás á Al Ahli Arab Babtista-sjúkrahúsið á norðurhluta Gasa þar sem allt 500 manns biðu bana. Ísraelsstjórn og Hamas kenna hvorir öðrum um. Ómögulegt virðist slá föstu hver ber ábyrgð en ólíklegt virðist þetta hafi verið viljaverk

Frumflutt

19. okt. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,