Heimsglugginn

Af 214 ára færeyskri peysu og sjóráni breska flotans

Spjall Þórunnar Elísabetar Bogadóttur og Eyrúnar Magnúsdóttur við Boga Ágústsson hófst á sagnfræðilegum nótum. Fyrir nokkrum dögum var opnuð póstsending í þjóðskjalasafni Breta 214 árum eftir pósturinn var sendur frá Færeyjum til Kaupmannahafnar. Pósturinn komst ekki alla leið því Anne-Marie, skipið sem flutti póstinn, var hertekið af breska flotanum. Farmur Anne-Marie hefur líklega verið boðinn upp og áhöfn herskipsins fengið andvirðið en póstsendingin var eftir í Lundúnum. Þegar pósturinn var lok opnaður kom í ljós handprjónuð peysa sem var stíluð á viðtakanda í Kaupmannahöfn, ýmislegt annað var í póstinum þar á meðal seðlar og mynt.

Kosið verður í Portúgal um helgina og Bogi ræddi við Einar Loga Vignisson um stjórnmálastöðuna í landinu. lokum ræddi Bogi andstöðu margra í Austur-Evrópu við Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, verði næsti framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins.

Frumflutt

7. mars 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,