Heimsglugginn

Efnahagsmál og breska samveldið

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir ræddu þessu sinni við Boga Ágústsson um stöðu efnahagsmála í Evrópu, verðbólga fer minnkandi, litlum hagvexti er spáð og vextir eru enn háir. Í mörgum Evrópulöndum er skortur á vinnuafli og jafnvel ríkisstjórn Ítalíu undir forsæti Giorgiu Meloni hefur rætt við Afríkuríki fólk til starfa. Meloni og stjórn hennar eru annars afar andvíg innflutningi fólks. Í Danmörku hefur vinnuveitendasambandið beðið stjórnvöld um 50 þúsund útlendinga til starfa.

Meginumræðuefni Heimsgluggans var þó staða Samveldis þjóða, sem áður var þekkt sem breska samveldið. Ástralskur prófessor í breskri sögu við Kaupmannahafnarháskóla segir samveldið í vanda, það eiginlega ekki til neins og langt síðan það hafi haft einhverja pólitíska eða efnahagslega þýðingu. Sennilega lifi það þó áfram af því enginn vilji verða til þess leggja það niður.

Frumflutt

14. sept. 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heimsglugginn

Heimsglugginn

Bogi Ágústsson ræðir um heimsmálin í þættinum Morgunvaktin á Rás 1 á hverjum fimmtudegi.

Þættir

,