• 00:01:05Staðan á fasteignamarkaði
  • 00:13:29Lögreglan rannsakar snyrtistofur
  • 00:18:58Inn með kántrí, út með plastpopp

Kastljós

Leyft öllum aldurshópum

Staðan á fasteignamarkaði, snyrtistofur undir eftirliti og tónlistarstefnur

Eftir margra mánaða ládeyðu á fasteignamarkaði fóru hjólin aftur að snúast upp úr áramótum, íbúðir farnar að seljast á yfirverði og húsnæðisliðurinn er helsta ástæðan fyrir því að verðbólga hækkar milli mánaða. Hvað gerðist og hvert verður framhaldið? Við spáum í húsnæðismál í kvöld.

Tugir ábendinga um mansal eða misneytingu hafa borist ASÍ og öðrum stéttarfélögum síðustu vikur í kjölfar aðgerða lögreglu gegn viðskiptaveldi Víetnamans Quangs Lés í byrjun mánaðarins. Fjórum ábendingum hefur verið vísað til lögreglu. Ein þeirra er nú til skoðunar og tengist snyrtistofum. Urður Örlygsdóttir ræddi við fyrrverandi formann Félags íslenskra snyrtifræðinga í dag, sem segir lítið sem ekkert eftirlit með greininni.

Fá áttu von á að kántrítónlist tæki yfir vinsældalista og hífðu hlustunartölur upp í hæstu hæðir en það er engu að síður raunin. Hver tónlistarmaðurinn á fætur öðrum hefur svissað yfir í sveitatónlistina. Kastljós tók punktstöðuna í tónlist með Önnu Dungal tónlistarfræðingi.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd
  • Dagskrárliðurinn er textaður

Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Þættir

,